Fara á efnissvæði

Eldi (3)

• Framleiðsla eldisfisks á Íslandi

Í þúsundum tonna

Á myndinni má sjá framleiðslu í fiskeldi á ári hverju á þessari öld. Árlega hefur í kringum 50 þúsund tonnum af eldisfiski verið slátrað undanfarin ár. Langstærsta tegundin þegar kemur að framleiðslu á eldisfiski er lax. Þar á eftir kemur bleikja, svo regnbogasilungur og Senegalflúra. Í dag er ekki eldi á öðrum tegundum. Á árinu 2022 bættist við ný tegund, Gullinrafi, en engin framleiðsla var á honum árið 2023 og óvíst er með framhald á eldi þeirrar tegundar. Árið 2023 var fjórða árið í röð frá árinu 1992 sem ekkert eldi var á þorski, en það var nokkuð fyrirferðarmikið á árunum 2005 til 2012.

Sjá nánar
• Eldi eftir umdæmum

Í þúsundum tonna

Umfang fiskeldis er mjög mismunandi eftir landshlutum. Mest er það á Vestfjörðum þar sem framleidd voru 28,3 þúsund tonn árið 2024. Næst mest er eldið á Austfjörðum, en þar voru framleidd um 17,8 þúsund tonn á árinu 2024. Þriðja stærsta svæðið er Reykjanes þar sem rúmlega 5,2 þúsund tonn af eldifiski voru framleidd á árinu 2023. Á Reykjanesi ræður bleikjan ríkjum en lax er langstærsti hluti fiskeldis á Vestfjörðum og Austfjörðum. Rétt er að hafa í huga að umfang fiskeldis byggist ekki eingöngu á fjölda tonna sem framleidd eru á hverjum stað. Bleikja og lax eru að sjálfsögðu misstórir fiskar, framleiðsluferli er mismunandi og Suðurland er langstærst í klaki og seiðaræktun fyrir aðrar eldisstöðvar. Þar að auki er kynbótastöð fyrir bleikju á Norðurlandi vestra og eystra, sem sér öllum öðrum bleikjustöðvum fyrir hrognum.

• Laxeldi á landi og í sjó

Í þúsundum tonna

Aukningin sem orðið hefur á laxeldi má að langstærstum hluta rekja til laxeldis í sjó. Framleiðsla úr sjókvíum voru tæp 46 þúsund tonn á árinu 2024. Nokkur stígandi hefur verið í eldi á laxi á landi en það er þó margfalt minna en eldi í sjó. Á árinu 2024 komu 3,6 þúsund tonn af laxi úr landeldi. Ef litið er til heimsins alls, þá er eldi á laxi á landi hlutfallslega mikið hér á landi en hafa verður í huga að 99% af laxeldi í heiminum er í sjó.