Fiskeldi
Sía
Vinnumarkaður (4)

Fjöldi launafólks í fiskeldi
Fjöldi samkvæmt staðgreiðsluskrá

Á myndinni sést meðalfjöldi einstaklinga á ári sem fékk staðgreiðsluskyld laun í fiskeldi í hverjum mánuði frá árinu 2008. Þar má glöggt sjá mikla fjölgun starfsmanna samhliða auknum umsvifum greinarinnar á undanförnum árum. Á árinu 2025 fengu að jafnaði um 970 einstaklingar greidd laun í fiskeldi í hverjum mánuði, sem jafngildir nærri sexföldun frá árinu 2008.

Frumframleiðslugreinar hafa almennt meira vægi á landsbyggðinni en aðrar atvinnugreinar. Fiskeldi er þar engin undantekning og er ein fárra atvinnugreina þar sem starfsemin er mun umfangsmeiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins landbúnaður stendur greininni framar í þeim efnum en fiskeldi er að öðru leyti á svipuðu róli og sjávarútvegur. Yfir 80% starfsfólks í fiskeldi býr á landsbyggðinni.

Atvinnutekjur í fiskeldi
Í milljörðum króna á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi ársins 2025

Á myndinni sjást heildaratvinnutekjur einstaklinga í fiskeldi frá árinu 2008, bæði á verðlagi hvers árs og föstu verðlagi ársins 2025. Á árinu 2025 námu atvinnutekjur í greininni ríflega 11,5 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri. Að raunvirði er það nærri tíföldun frá árinu 2008.

Frumframleiðslugreinar hafa almennt meira vægi á landsbyggðinni en aðrar atvinnugreinar og fiskeldi er þar engin undantekning. Greinin er sannkölluð landsbyggðaratvinnugrein enda rennur langstærstur hluti atvinnutekna til einstaklinga sem búa á landsbyggðinni, eða um 80%. Hlutfallið er svipað og í sjávarútvegi og er það einungis hærra í landbúnaði.

Hlutdeild launafólks og atvinnutekna í fiskeldi af heild
Miðað við staðgreiðsluskrá

Á myndinni sést hlutdeild fiskeldis í heildarfjölda starfandi hér á landi og atvinnutekjur greinarinnar sem hlutfall af heildaratvinnutekjum. Hlutdeild fiskeldis hefur vaxið stöðugt á undanförnum árum, enda hafa umsvif greinarinnar aukist hraðar en í öðrum atvinnugreinum.

Þó ber að hafa í huga að efnahagsleg þýðing fiskeldis er mun meiri en beint umfang greinarinnar gefur til kynna, enda telst hún til grunnatvinnuvega. Afleidd og óbein áhrif greinarinnar eru því umtalsverð og koma skýrt fram í þeim landshlutum þar sem fiskeldi er umfangsmest.

Á myndinni sést að undanfarinn áratug hefur vægi fiskeldis verið meira þegar horft er til atvinnutekna en fjölda launafólks. Það bendir til þess að atvinnutekjur á hvern starfandi í fiskeldi séu að jafnaði hærri en í atvinnulífinu í heild.

Atvinnutekjur á mann á mánuði í fiskeldi og hagkerfinu alls
Í þúsundum króna á föstu verðlagi ársins 2025

Á myndinni sjást atvinnutekjur á mann í fiskeldi samanborið við atvinnutekjur á mann í öllum atvinnugreinum samanlagt, á föstu verðlagi ársins 2025. Við samanburð ber að hafa í huga að ekki er tekið tillit til vinnustunda, starfshlutfalls, menntunarstigs eða annarra þátta sem hafa áhrif á laun.

Áhugavert er að líta á hvernig atvinnutekjur á mann hafa þróast í fiskeldi í samanburði við aðrar atvinnugreinar. Þá kemur í ljós að atvinnutekjur á mann í fiskeldi hafa verið nokkuð hærri en að jafnaði í öllum atvinnugreinum samanlagt undanfarinn áratug, en á fyrstu árum þess tímabils sem hér um ræðir var þessu öfugt farið.