Fara á efnissvæði

Botn- og flatfiskur (7)

• Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða

Í milljörðum króna á föstu gengi ársins 2025

Á myndinni sjást útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða á föstu gengi. Leiðrétt hefur verið fyrir sveiflum í gengi krónunnar, sem eðlilega hafa veruleg áhrif á verðmæti útflutnings í krónum talið. Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða ræðst ekki einvörðungu af genginu heldur einnig fjölmörgum öðrum þáttum.

Úthlutaður kvóti í einstaka tegundum getur verið afar breytilegur milli ára og fisktegundir eru fjölmargar og misverðmætar. Þá ræður afurðaverð miklu en það ræðst af aðstæðum á erlendum mörkuðum, sölustarfi og markaðssetningu. Afurðavinnsla hefur einnig mikil áhrif en hún er afar fjölbreytt, jafnvel innan sömu fisktegundar. Fjölbreytni í vinnslu eykur til muna sveigjanleika og verðmætasköpun í sjávarútvegi. Á ári hverju eru fluttar út botn- og flatfiskafurðir sem falla undir um þrjú hundruð tollskrárnúmer, sem endurspeglar breidd og fjölbreytni í framleiðslu.

Á myndinni sést einnig hlutfall botn- og flatfiskafurða í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Það hefur farið lægst í 60% á þessari öld en hæst í 74%. Hlutfallið ræðst vitaskuld einnig af afla og þróun í öðrum tegundaflokkum. Þess má geta að fiskmeti í loftþéttum umbúðum er ekki meðtalið í útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða, en verðmæti þess undanfarin ár hefur verið í kringum 5 milljarða króna á ári. Verðmæti úr svokölluðum hliðarafurðum, sem fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki skapa, eru heldur ekki meðtalin hér, en þar hefur orðið mikil aukning undanfarin ár. Óhætt er að fullyrða að engin þjóð stendur Íslendingum framar í nýtingu á sjávarafla.

Sjá nánar
• Útflutningur botn- og flatfiskafurða

Í þúsundum tonna

Á myndinni sést útflutningur á botn- og flatfiskafurðum í tonnum talið og hlutfall þeirra af heildarútflutningi sjávarafurða. Vægi botn- og flatfiskafurða í heildarútflutningi á sjávarafurðum hefur verið á bilinu 31 – 43% á þessari öld. Það er talsvert minna en vægi þeirra þegar horft er til verðmæta.

Þróunin í magni og verðmæti fer ekki alltaf saman, enda ræðst útflutningsverðmæti í erlendri mynt af mun fleiri þáttum en magni einu saman. Miklar sveiflur geta orðið í afurðaverði, sem ræðst meðal annars af aðstæðum á mörkuðum, framboði af einstaka fisktegundum á heimsvísu og sölu- og markaðssetningu.

Samsetning útfluttra afurða hefur einnig mikil áhrif og hún getur verið breytileg milli tímabila og jafnvel á milli ára. Afurðir botn- og flatfiska eru afar fjölbreyttar og misverðmætar, en stöðug þróun er í afurðavinnslu sem miðar að því að auka verðmæti hráefnisins. Á sama tíma skiptir máli að viðhalda fjölbreytni í vinnslu, enda dregur hún úr áhættu og eykur sveigjanleika gagnvart breytilegum markaðsaðstæðum.

• Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða eftir helstu tegundum

Í milljörðum króna á föstu gengi ársins 2025

Af útfluttum botn- og flatfisktegundum hafa þorskur, ýsa, ufsi, karfi og grálúða verið fyrirferðamestar. Þorskurinn er efstur á lista og hefur vægi hans í útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða verið á bilinu 49–67% á þessari öld, en hlutdeild hans hefur verið meiri á seinni hluta tímabilsins.

Aðalástæðan er sú að þorskafli hefur verið nokkuð meiri á seinni hluta tímabilsins, þótt kvóti annarra botn- og flatfisktegunda hafi jafnframt áhrif. Mikilvægt er einnig að nefna breytingar á vinnsluháttum sem hafa leitt til meiri aukningar á verðmæti þorsks en á útfluttu magni. Stærri hluti aflans er nú unninn í ferskar afurðir, sem skilar að jafnaði meiri verðmætum en aðrar vinnsluaðferðir.

Ýsa er næst á eftir þorski með hlutdeild sem hefur að jafnaði verið tæp 12% á þessari öld. Karfi fylgir í kjölfarið með rúm 9% og ufsi með 7%. Grálúðan rekur lestina af þessum fimm tegundum með tæp 5%. Aðrar botn- og flatfisktegundir hafa samanlagt vegið um 10% af útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða frá aldamótum.

• Útflutningur botn- og flatfiskafurða eftir helstu tegundum

Í þúsundum tonna

Á þessari mynd sést útflutningur botn- og flatfiskafurða í tonnum, sundurliðað eftir helstu tegundum. Samanburður við útflutningsverðmæti sýnir að vægi einstakra tegunda er nokkuð annað þegar horft er til magns, einkum þorsks. Vægi hans í útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða frá aldamótum hefur að jafnaði verið rúm 57%, en miðað við útflutt magn vegur hann um 45%. Hvert útflutt kíló af þorski er því að jafnaði talsvert verðmætara en af öðrum botn- og flatfisktegundum.

Miðað við útflutt magn hefur karfi vegið næstmest af botn- og flatfiski á þessari öld, eða um 16%. Það er talsvert umfram hlutdeild hans í verðmæti (rúm 9%). Ýsa hefur að jafnaði vegið tæp 11% af útfluttu magni, sem er aðeins undir hlutdeild hennar miðað við verðmæti (tæp 12%). Ufsi hefur vegið rúm 10% af magni en um 7% af verðmæti. Grálúðan hefur vegið minnst, rúm 4% af magni en tæp 5% af verðmæti. Afurðir af öllum öðrum botn- og flatfisktegundum hafa samanlagt vegið rúm 14% af magni en 10% af verðmæti.

• Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða eftir vinnslu

Í milljörðum króna á föstu gengi ársins 2025

Á myndinni sést útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða eftir grófum vinnsluflokkum, en margir þættir hafa áhrif á hvernig fiskur er unninn. Ber þar fyrst að nefna úthlutaður kvóti í einstaka tegundum, en þær hafa hver sín sérkenni og eru unnar á mismunandi máta. Aðstæður á mörkuðum og þróun í vinnslutækni hafa einnig mikil áhrif.

Ein stærsta breytingin á þessari öld er aukin áhersla á ferskfiskvinnslu en slík vinnsla krefst hátæknibúnaðar. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa ráðist í verulegar fjárfestingar í slíkum búnaði á undanförnum árum. Þessi áherslubreyting er fyrst og fremst drifin áfram af því markmiði að hámarka verðmæti úr takmörkuðum afla.

Þorskurinn er fyrirferðamesta tegundin í öllum fimm vinnsluflokkunum sem hér eru nefndir, hvort sem miðað er við verðmæti eða magn. Fjöldi ólíkra afurða er unninn úr þorski og möguleikarnir til verðmætasköpunar þar eru umtalsvert meiri en í öðrum tegundum. Undanfarin ár hefur stærsti hluti útflutningsverðmætis þorsks komið frá ferskum flökum, næstmest frá landfrystum flökum og síðan frá blautverkuðum saltfiski. Vert er að hafa í huga að hluti þeirra afurða sem hér eru flokkaðar sem landfryst flök felur einnig í sér léttsaltaðar afurðir.

Á undanförnum árum hafa fersk flök vegið þyngst í útflutningsverðmæti ýsu, en næst á eftir koma landfryst og sjófryst flök. Ufsaafurðir eru að stærstum hluta sjófrystar og landfrystar, þótt útflutningur á ferskum ufsaflökum hafi aukist á allra síðustu árum. Karfi er að stórum hluta fluttur út heill, sjófrystur eða ísaður, en einnig er eitthvað í formi landfrystra og ferskra flaka. Grálúðan er að langstærstum hluta flutt út heilfryst á sjó.

Þegar öllu er á botninn hvolft má vera ljóst að fiskur í sjó felur ekki í sér verðmæti í sjálfu sér. Það þarf að veiða hann, vinna og skapa úr honum afurðir sem standast ólíkar kröfur markaða víða um heim.

• Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða eftir mörkuðum

Í milljörðum króna á föstu gengi ársins 2025

Viðskipti við einstök lönd og svæði með botn- og flatfiskafurðir eru mismikil á milli ára og tímabila enda ráðast þau af fjölmörgum þáttum. Þar vegur framboð á einstökum tegundum þungt, sem getur verið nokkuð breytilegt frá einu ári til annars. Tegundir hafa jafnframt sín sérkenni og eru unnar með ólíkum hætti, sem hefur bein áhrif á það til hvaða landa afurðirnar eru fluttar.

Sú stöðuga þróun sem á sér stað í afurðavinnslu hefur áhrif á viðskipti við einstök lönd. Ferskfiskvinnsla er gott dæmi um slíkt, en hún hefur leitt til stóraukins útflutnings til Frakklands og Bandaríkjanna á undanförnum árum. Sumir markaðir byggjast þó á langri hefð fyrir neyslu frystra botnfiskafurða í staðlaða rétti, svo sem „fish and chips“, ásamt sérhæfðri vinnslu, líkt og á mörkuðum með saltaðar afurðir. Þetta sýnir vel hvernig vinnsluaðferðir, ekki síður en tegundir, móta viðskiptasambönd og verðmætasköpun. Fjölbreytileiki í vinnslu og mörkuðum er afar jákvæður enda eykur hann sveigjanleika í útflutningi.

Fjöldi afurða er unninn úr þorski og möguleikarnir til verðmætasköpunar þar eru umtalsvert meiri en hjá öðrum tegundum. Af þeim sökum eru afurðir úr þorski fluttar til mun fleiri landa en afurðir annarra tegunda. Langstærsti hluti þeirra fer til landa í Vestur-Evrópu, þar á eftir kemur Norður-Ameríka og síðan Afríka. Útflutningur á ýsu endurspeglar að stórum hluta sömu svæðaskiptingu.

Ufsaafurðir eru að stærstum hluta fluttar til Vestur-Evrópu, þar á eftir kemur Austur-Evrópa og síðan Norður-Ameríka. Karfaafurðir eru jafnframt að stærstum hluta fluttar til Vestur-Evrópu, svo til Asíu og Austur-Evrópu. Megnið af grálúðu er hins vegar flutt til Asíu og afgangurinn fer að mestu til Vestur-Evrópu.

Í þessu efni er ekkert sjálfgefið. Útflutningur og sala á sjávarafurðum í harðri alþjóðlegri samkeppni krefst virks sölu- og markaðsstarfs og mikillar aðlögunarhæfni fyrirtækjanna að síbreytilegum kröfum neytenda. Allt snýst þetta um að hámarka verðmætasköpun úr takmörkuðum sjávarafla.

• Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða til tíu stærstu viðskiptalanda árin 2021-2025

Í milljörðum króna

Á myndinni má sjá tíu stærstu viðskiptalönd með botn- og flatfiskafurðir á árunum 2021–2025, sundurliðuð eftir grófum vinnsluflokkum. Myndin dregur skýrt fram hversu ólíkir þessir markaðir eru. Það er afar jákvætt þar sem það eykur til muna sveigjanleika í útflutningi botn- og flatfiskafurða.

Frakkland er stærsta einstaka viðskiptaland Íslendinga fyrir botn- og flatfiskafurðir, en þar vegur útflutningur á ferskum afurðum langþyngst. Sú staða er fremur ný af nálinni og má fyrst og fremst rekja til mikillar aukningar sem orðið hefur í ferskfiskvinnslu hér á landi á undanförnum árum. Svipaða sögu má segja um Bandaríkin sem eru þriðja stærsta viðskiptalandið á myndinni, þar sem ferskar botnfiskafurðir skipa einnig stóran sess.

Samsetning útflutnings til Bretlands, sem er annað stærsta viðskiptalandið, er hins vegar allt önnur. Þar vegur útflutningur á sjó- og landfrystum botnfiskafurðum þyngst, sem fer vafalaust að stórum hluta í einn þekktasta rétt Breta, „fish and chips“. Spánn og Portúgal endurspegla einnig langa neysluhefð, ásamt sérhæfðri vinnslu. Til Portúgals fer nær eingöngu saltaður fiskur en til Spánar fer bæði saltaður og léttsaltaður fiskur, þar sem léttsaltaðar afurðir eru hér flokkaðar með landfrystum. Nígería sker sig úr á myndinni, en sá útflutningur byggist jafnframt á langri hefð. Nígería er eina landið þar sem þurrkaðar afurðir eru ríkjandi, en þær eru að megninu til hertir þorskhausar, auk ýsu- og ufsahausa.

Að lokum má nefna Holland, sem er hér fimmta í röðinni yfir stærstu viðskiptalönd. Landið gegnir einnig mikilvægu hlutverki í útflutningi á botn- og flatfiskafurðum. Holland er oft milliliðamarkaður þar sem afurðir eru fluttar áfram til annarra landa, stundum eftir frekari vinnslu eða pökkun. Í þessu tilviki endurspegla útflutningstölur ekki endilega endanlegan neyslumarkað heldur stöðu landsins í alþjóðlegum viðskiptum.