Fara á efnissvæði

Landið alls (6)

• Fjöldi launafólks í fiskveiðum og -vinnslu

Fjöldi samkvæmt staðgreiðsluskrá, í þúsundum

Á undanförnum árum hafa 7 til 8 þúsund manns starfað í fiskveiðum og -vinnslu á Íslandi. Talsvert fleiri starfa við vinnslu, en í báðum tilvikum hefur starfsmönnum fækkað nokkuð undanfarinn áratug. Ástæðurnar eru nokkrar. Nefna má samþjöppun, hagræðingu og stærri og öflugri skip. Langstærsta ástæðan er þó mikil tæknivæðing sem hefur aukið framleiðni og þar með dregið úr þörf á vinnuafli. Þessi þróun er óhjákvæmileg til að tryggja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs á alþjóðlegum markaði, þar sem 98% af íslensku sjávarfangi eru seld. Tæknivæðing hefur jafnframt stuðlað að því að stærsti hluti framleiðslunnar og verðmætasköpun í sjávarútvegi helst hér á landi og þar með störf.

Samhliða fækkun starfa í sjávarútvegi, vegna tæknivæðingar, fjölgar störfum þar sem krafist er sérhæfingar. Samtímis hefur fjöldi nýrra afleiddra starfa sem tengjast sjávarútvegi orðið til, einkum fyrir sérmenntað fólk í nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum. Einn helsti vaxtarsproti í íslenskum sjávarútvegi er einmitt í þessum greinum. Því eru störf tengd sjávarútvegi mun fleiri en tölur á myndinni gefa til kynna.

Sjá nánar
• Hlutdeild launafólks í fiskveiðum og -vinnslu af heildarfjölda launafólks

Miðað við fjölda samkvæmt staðgreiðsluskrá

Sjávarútvegur gegnir mikilvægu hlutverki á íslenskum vinnumarkaði. Rúmlega 3-4% launafólks á Íslandi hafa starfað við veiðar og vinnslu á undanförnum árum. Mikilvægi sjávarútvegs fyrir íslenskan vinnumarkað er þó öllu meira en þessar tölur á myndinni bera með sér. Ástæðan er sú að sjávarútvegur er grunnatvinnuvegur og einn af hornsteinum íslensks efnahagslífs. Það þýðir að hann hefur mun meiri efnahagslega þýðingu en beint umfang hans gefur til kynna. Fjöldi fyrirtækja treystir á starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja með beinum og óbeinum hætti, þar á meðal fyrirtæki í hefðbundnum hliðargreinum sjávarútvegs og nýsköpunarfyrirtæki sem byggja starfsemi sína á nýtingu sjávarafurða með óhefðbundnum hætti. Þá hafa hátæknifyrirtæki, í samstarfi við sjávarútvegsfyrirtæki, náð miklum árangri.

Minna vægi sjávarútvegs í hefðbundnum skilningi á vinnumarkaði skýrist ekki eingöngu af fækkun starfsmanna heldur einnig af auknum umsvifum annarra atvinnugreina sem ekki byggjast á sjálfbærri nýtingu auðlinda.

• Hlutdeild atvinnutekna í fiskveiðum og -vinnslu af heildaratvinnutekjum

Miðað við staðgreiðsluskyldar launagreiðslur

Á undanförnum árum hafa fiskveiðar og -vinnsla staðið undir um 5-6% af heildaratvinnutekjum einstaklinga á landinu öllu. Það er nokkuð meira en vægi greinarinnar í fjölda starfandi, sem bendir til mikillar framleiðni og verðmætasköpunar á hvern starfandi. Hlutdeild í atvinnutekjum er þó talsvert minni en á árum áður, sem endurspeglar helst aukin umsvif annarra atvinnugreina sem ekki lúta sömu takmörkunum og sjávarútvegur vegna sjálfbærrar nýtingar á náttúruauðlind.

Mikilvægi sjávarútvegs blasir við í þessum tölum, en þær ná þó ekki að fanga að fullu áhrif greinarinnar á atvinnutekjur hér á landi. Sjávarútvegur er einn helsti grunnatvinnuvegur þjóðarinnar og hefur þar með mun meiri efnahagslega þýðingu en beint framlag hans gefur til kynna. Vegna sjávarútvegs verður umtalsverð verðmætasköpun í öðrum fyrirtækjum, bæði í hefðbundnum hliðargreinum sjávarútvegs og í nýsköpunar- og hátæknifyrirtækjum sem hafa náð miklum árangri, meðal annars í samstarfi við greinina.

• Atvinnutekjur í fiskveiðum og -vinnslu, auk útflutningsverðmæta sjávarafurða

Í milljörðum króna á verðlagi ársins 2025

Á myndinni sést atvinnutekjur í fiskveiðum og -vinnslu ásamt útflutningsverðmæti sjávarafurða á föstu verðlagi ársins 2025. Þróun heildaratvinnutekna í veiðum og vinnslu er keimlík þróun útflutningsverðmætis sjávarafurða, sem endurspeglar tengsl launa og verðmætasköpunar í greininni.

Atvinnutekjur í þessum tveimur starfsgeirum ráðast þó af nokkuð ólíkum þáttum. Launakerfi sjómanna byggist á hlutaskiptum aflaverðmætis milli sjómanna og útgerða og haldast laun þeirra þar með í hendur við tekjur sjávarútvegsfyrirtækja. Þau ráðast meðal annars af aflaheimildum, nýtingu hráefnis, þróun afurðaverðs á erlendum mörkuðum og gengi krónunnar. Atvinnutekjur í fiskvinnslu grundvallast hins vegar á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Þegar á heildina er litið sést að þrátt fyrir fækkun starfsfólks í sjávarútvegi hefur það ekki haft áhrif á heildaratvinnutekjur í veiðum og vinnslu. Þetta bendir til þess að launagreiðslur á hvern starfsmann hafi hækkað umtalsvert á tímabilinu, sem að stórum hluta má rekja til aukinnar framleiðni í greininni.

• Atvinnutekjur á mann á mánuði í fiskvinnslu og hagkerfinu alls

Í þúsundum króna á föstu verðlagi ársins 2025

Á myndinni sjást staðgreiðsluskyldar launagreiðslur á mann í fiskvinnslu samanborið við meðaltal allra atvinnugreina, á föstu verðlagi ársins 2025. Í upphafi tímabilsins voru launagreiðslur í fiskvinnslu um 80% af meðaltalinu, en á undanförnum árum hafa þær verið á svipuðu róli. Við samanburðinn ber að hafa í huga að ekki er tekið tillit til vinnustunda, starfshlutfalls, menntunarstigs eða annarra þátta sem hafa áhrif á laun.

Þrátt fyrir það endurspeglar þróunin mikla framleiðniaukningu í fiskvinnslu sem er tilkomin vegna verulegrar fjárfestingar fyrirtækja í hátæknivinnslum. Sú fjárfesting hefur styrkt samkeppnishæfni innlendra fiskvinnslna og samhliða því hefur sérhæfðum störfum fjölgað og eru nú hlutfallslega fleiri en áður.

Staðgreiðsluskyldar launagreiðslur á mann í fiskvinnslu voru að jafnaði um 44% hærri árið 2025 en árið 2008 á föstu verðlagi, á sama tíma og meðaltal allra atvinnugreina hækkaði um 14%.

• Atvinnutekjur á mann á mánuði í fiskveiðum og hagkerfinu alls

Í þúsundum króna á föstu verðlagi ársins 2025

Á myndinni sést atvinnutekjur á mann í fiskveiðum, samanborið við meðaltal allra atvinnugreina á föstu verðlagi ársins 2025. Við samanburðinn ber að hafa í huga að ekki er tekið tillit til vinnustunda, starfshlutfalls, menntunarstigs eða annarra þátta sem hafa áhrif á laun.

Laun sjómanna eru frábrugðin launum hefðbundins launafólks. Laun þeirra ákvarðast í svokölluðu hlutaskiptakerfi, þar sem áhöfn skips skiptir með sér tilteknu hlutfalli af aflaverðmæti. Það gerir laun sjómanna nátengd tekjum sjávarútvegsfyrirtækja, sem meðal annars ráðast af aflaheimildum, nýtingu hráefnis, þróun afurðaverðs á erlendum mörkuðum og gengi íslensku krónunnar.

Á myndinni sést að atvinnutekjur í fiskveiðum hafa að jafnaði verið mun hærri en í atvinnugreinum alls á þessu tímabili, oft rúmlega tvöfaldar. Munurinn hefur almennt verið meiri á tímabilum þegar gengi krónunnar hefur verið veikara. Séu allar atvinnugreinar bornar saman á þennan kvarða, kemur í ljós að atvinnutekjur í fiskveiðum hafa verið hæstar á hverju einasta ári á ofangreindu tímabili, sem endurspeglar bæði sérstöðu launakerfisins og mikla verðmætasköpun í greininni.