Fara á efnissvæði
Ágætis aukning í útflutningsverðmæti sjávarafurða

Ágætis aukning í útflutningsverðmæti sjávarafurða

1. október 2026

Á fyrstu átta mánuðum ársins nam útflutningsverðmæti sjávarafurða, að fiskmeti meðtöldu, um 253 milljörðum króna. Það jafngildir rúmlega 39% af verðmæti alls vöruútflutnings á tímabilinu. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um rúmlega 7% í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til gengisbreytinga er aukningin aðeins meiri, eða rúm 8%, enda hefur gengi krónunnar að jafnaði verið rétt um 1% sterkara í ár en á sama tímabili í fyrra.

Mestu munar um loðnu

Aukninguna má að langstærstum hluta rekja til loðnu, líkt og glögglega má sjá á myndinni hér að neðan. Útflutningsverðmæti loðnuafurða nam 22,5 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins og jókst um 160% frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Aukningin skýrist af auknum aflaheimildum, en loðnuafli íslenskra skipa nam um 5,6 þúsund tonnum í fyrra samanborið við um 152 þúsund tonn í ár.  

Á móti vegur umtalsverður samdráttur í útflutningsverðmæti kolmunna og makríls, sem má rekja til samdráttar í aflaheimildum á milli ára. Verðmæti kolmunnaafurða nam 7,9 milljörðum króna og dróst saman um 43% á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Verðmæti útfluttra makrílafurða nam 5,4 milljörðum króna, en þar var samdrátturinn heldur meiri, eða um 57% á sama kvarða. Enn meiri samdráttur hefur orðið í útfluttu magni, eða um 72%, og hefur hærra afurðaverð því vegið nokkuð á móti samdrættinum. Minna framboð af makríl á mörkuðum vegna minni aflaheimilda skýrir hærra verð að stærstum hluta. Veiðar hófust jafnframt töluvert síðar í ár, sem hefur haft áhrif á gæði aflans og hversu stór hluti vertíðarinnar hefur skilað sér í útflutningstölur í lok ágúst.

Afurðaverð í lykilhlutverki

Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða nam um 187 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins og jókst um 11% á milli ára á föstu gengi. Hækkun afurðaverðs hefur þar skipt sköpum og vegið upp samdrátt í útfluttu magni og gott betur.

Mestu munar um þorsk, en þar á eftir koma ýsa og ufsi. Útflutningsverðmæti þorskafurða nam rúmum 113 milljörðum króna á tímabilinu og jókst um 9% á föstu gengi, þrátt fyrir að útflutt magn hafi dregist saman um 7%. Verðmæti ýsuafurða nam 31,7 milljörðum króna og jókst um 19%, á sama tíma og magnið dróst saman um tæp 4%. Þá nam útflutningsverðmæti ufsaafurða 11,4 milljörðum króna og jókst um rúm 11%, þótt útflutt magn hafi dregist saman um 15%. Afurðasamsetning hefur vissulega áhrif á slíkan samanburð, en þróunin innan einstakra afurðaflokka sýnir engu að síður glögglega hversu stóran þátt hækkandi afurðaverð á í auknu útflutningsverðmæti.

Hátt verð en dregur úr hækkunartaktinum

Þróunin í botnfiskinum endurspeglar vel miklar afurðaverðshækkanir á erlendum mörkuðum undanfarin misseri. Minna framboð á helstu tegundum, meðal annars vegna aflaskerðingar í Barentshafi, samhliða mikilli eftirspurn, hefur þar vegið þungt.

Þróunin sést vel í verðvísitölu botnfiskafurða sem Hagstofan birtir. Hún hefur hækkað nær samfellt frá árslokum 2024 og náði sínu hæsta gildi frá upphafi í júlí. Tólf mánaða hækkunin fór hæst í rúm 28% í mars, mælt í erlendri mynt, en var komin niður í rúm 23% í ágúst. Dregið hefur því aðeins úr hækkunartaktinum undanfarna mánuði.