Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í nóvember sem birtar voru í síðustu viku. Þar er einungis birt útflutningsverðmæti eldisafurða í heild og því liggur ekki fyrir sundurliðun niður á einstaka tegund í nóvember. Myndin hér að neðan sýnir því aðeins verðmæti eldisafurða í heild fyrir árið 2024.
50 þúsund tonna múrinn brotinn á næsta ári
Vöxtur fiskeldis á Íslandi hefur verið markviss síðustu ár. Laxeldi er nú, eins og sjá má á myndinni hér að ofan, langstærsti liðurinn í útflutningi á eldisafurðum. Allar líkur eru á að hlutdeild þess aukist enn frekar á komandi árum. Aukin framleiðsla í sjókvíaeldi og metnaðarfull áform um stórfellda uppbyggingu á landeldi munu áfram styrkja stöðu íslensks fiskeldis og styðja við efnahagslega hagsæld á Íslandi.
Samkvæmt gögnum Matvælastofnunar má gera ráð fyrir að framleiðsla upp úr sjó á næsta ári verði um 55 þúsund tonn. Til samanburðar hefur framleiðslan undanfarin þrjú ár verið í kringum 45 þúsund tonn. Á næstu árum má jafnframt búast við umtalsverðri aukningu í landeldi. Metárið 2024 mun því að öllum líkindum aðeins bera titilinn um sinn.