Útflutningsverðmæti eldisafurða nam tæpum 6 milljörðum króna í nóvember. Það er tæplega þriðjungs samdráttur frá fyrra ári. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða 47,9 milljarðar króna sem er 12,1% aukning frá sama tímabili í fyrra. Það er orðið nokkuð ljóst að það stefnir í metár og jafnframt eru horfur á að verðmæti eldisafurða fari í fyrsta sinn yfir 50 milljarða króna. Fyrra met er frá árinu 2022 þegar útflutningsverðmæti nam tæpum 49 milljörðum króna.
Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í nóvember sem birtar voru í síðustu viku. Þar er einungis birt útflutningsverðmæti eldisafurða í heild og því liggur ekki fyrir sundurliðun niður á einstaka tegund í nóvember. Myndin hér að neðan sýnir því aðeins verðmæti eldisafurða í heild fyrir árið 2024.