Fara á efnissvæði
Útflutningur fiskeldis nálgast 60 milljarða

Útflutningur fiskeldis nálgast 60 milljarða

12. nóvember 2026

Í október voru fluttar út eldisafurðir fyrir 5,6 milljarða króna. Það er um 3% aukning frá sama mánuði í fyrra, en á föstu gengi nemur aukningin rúmum 4%. Útflutningsverðmæti eldisafurða er þar með komið í tæpa 57 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins, sem er rúmlega 36% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra.

Eldisafurðir voru tæplega 7%% af heildarverðmæti vöruútflutnings á tímabilinu, en þær hafa aldrei verið fyrirferðameiri í útflutningi á þessum hluta árs. Þetta má sjá í bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruviðskipti í október. 

135 milljarðar í fjárfestingu á fimm árum

Fjárfestingar í fiskeldi voru meiri í fyrra en nokkru sinni fyrr og námu alls um 45 milljörðum króna.  Þetta kemur fram í nýrri samantekt Deloitte sem kynnt var á Sjávarútvegsdeginum. Samkvæmt henni hafa eldisfyrirtæki fjárfest fyrir samtals 135 milljarða króna á undanförnum fimm árum. 

Fjárfestingarnar ná bæði til sjókvíaeldis og landeldis. Í sjókvíaeldi hefur meðal annars verið ráðist í endurnýjun fóðurpramma og annars búnaðar, auk landtenginga. Í landeldi felst mikil fjárfesting í nýjum eldisstöðvum, stækkun þeirra sem fyrir eru og uppbyggingu seiðaeldis. Fjárfestingarnar eru mislangt á veg komnar. Hluti uppbyggingarinnar hefur þegar skilað sér í aukinni framleiðslu og útflutningi á meðan önnur verkefni eru enn á framkvæmdastigi. Áhrifa fjárfestinga undanfarinna ára er því ekki að fullu farið að gæta í útflutningstölunum.