Fara á efnissvæði
Fiskeldið yfir 50 milljarða – treysta þarf rekstrarumhverfið

Fiskeldið yfir 50 milljarða – treysta þarf rekstrarumhverfið

8. október 2026

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 6,2 milljörðum króna í september. Það er um 67% aukning á föstu gengi frá sama mánuði í fyrra. Verðmætin eru þar með komin í tæpan 51 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er um 40% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Gengi krónunnar hefur að jafnaði verið um 1% sterkara það sem af er ári, miðað við gengisvísitölu Seðlabankans.

Vægi eldisafurða í verðmæti alls vöruútflutnings nam um 7% á fyrstu níu mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira á þessum hluta árs. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruviðskipti í september, sem birtar voru í gær.

Vöxtur skilar störfum og skatttekjum

Vöxturinn í fiskeldi birtist ekki aðeins í útflutningstölunum heldur endurspeglast einnig skýrt í tölum af vinnumarkaði . Á fyrstu átta mánuðum ársins störfuðu að jafnaði rúmlega eitt þúsund manns við fiskeldi, sem er um 8% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Rúm 84% starfsfólks í greininni bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins og þar var fjölgunin heldur meiri, eða rúm 9%.

Atvinnutekjur í fiskeldi námu 8,4 milljörðum króna á tímabilinu og jukust um 11% að nafnvirði frá fyrra ári. Að teknu tilliti til verðbólgu nam aukningin rúmlega 5%. Á landsbyggðinni jukust atvinnutekjur enn meira, eða um rúm 13% að nafnvirði og tæp 8% að raunvirði.

Efnahagsleg áhrif fiskeldis eru umtalsvert meiri en ofangreindar tölur einar og sér bera með sér, enda er fiskeldi grunnatvinnuvegur. Starfsemin skapar fjölmörg störf í öðrum atvinnugreinum sem eru beint eða óbeint háð umsvifum fiskeldisfyrirtækja og áhrifin ná því langt út fyrir greinina sjálfa.

Síðustu misseri hafa verið krefjandi, meðal annars vegna lágra verða, hárra skatta og að öðru leyti erfiðra rekstrarskilyrða. Skattspor greinarinnar og hinn samfélagslegi ábati munu vaxa samhliða aukinni fjárfestingu, fjölgun starfa, auknum atvinnutekjum og meiri verðmætasköpun, en það gerist ekki ef það rekstrarumhverfi sem atvinnugreininni er búið styður ekki við það. Á stjórnvöldum hvílir að skapa samkeppnishæfa umgjörð sem styður við áframhaldandi vöxt og mikilvægt framlag til hagvaxtar og góðra lífskjara hér á landi um lengri framtíð.