Fara á efnissvæði
Metmánuður – fiskur ríflega helmingur útflutningsverðmæta

Metmánuður – fiskur ríflega helmingur útflutningsverðmæta

17. apríl 2026

Útlit er fyrir að mars hafi verið metmánuður í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Alls voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 43,8 milljarða króna, sem er það hæsta sem mælst hefur í einum mánuði eins langt aftur og mánaðargögn ná (2002). Gildir þá einu hvort miðað er við krónur eða erlenda mynt, jafnvel að teknu tilliti til verðbólgu erlendis. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í mars en þar eru verðmætin einungis birt niður á grófa vinnsluflokka, ekki fisktegundir.

Hátt í 60% aukning milli ára

Miðað við mars í fyrra er um 53% aukning í krónum talið, en að teknu tilliti til gengisbreytinga nemur hún um 57%. Mest munar um ríflega þreföldun á útflutningsverðmæti heilfrysts fisks sem vafalaust má að stórum hluta rekja til loðnu. Aukning í frystum flökum (69% á föstu gengi) og ferskum afurðum (33%) vegur þar einnig þungt. Þá varð dágóð aukning í söltuðum og þurrkuðum afurðum (18%) og í flokknum aðrar sjávarafurðir (35%). Auk þess jókst verðmæti fiskimjöls um 68% og lýsis um 45% á föstu gengi.

Um fjórðungs aukning á fyrsta ársfjórðungi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða eru því komin í 102 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi, sem er um 24% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Aukningin er, líkt og í mars, byggð á breiðum grunni, en mest munar um fryst flök (30%), heilfrystan fisk (93%) og ferskar afurðir (19%).

Verð í hæstu hæðum

Verð á sjávarafurðum á erlendum mörkuðum hefur hækkað töluvert undanfarin misseri og ekkert lát virðist á því það sem af er ári. Hækkandi verð má að stórum hluta rekja til minna framboðs á helstu tegundum, meðal annars vegna aflaskerðingar í Barentshafi, á sama tíma og eftirspurn hefur verið mikil á helstu mörkuðum. Það endurspeglast meðal annars í verðvísitölu botnfiskafurða sem Hagstofan birtir, en hún hefur hækkað nær linnulaust frá árslokum 2024. Í febrúar náði hún sínu hæsta gildi frá upphafi og nam þá árshækkun vísitölunnar 26% í erlendri mynt.

Fiskur ríflega helmingur verðmæta

Á fyrsta ársfjórðungi nam verðmæti vöruútflutnings 244 milljörðum króna sem er tæplega 3% aukning frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Sjávarafurðir námu 42% af verðmæti útflutnings á fjórðungnum og eldisafurðir rúmlega 9%, en verðmæti eldisfisks hefur aldrei verið meira í upphafi árs. Samanlagt stóðu þessar tvær greinar því undir ríflega helmingi alls vöruútflutnings á fyrsta ársfjórðungi. Án þeirra hefði verðmæti vöruútflutnings dregist saman um rúm 13% á fyrsta ársfjórðungi.