Fara á efnissvæði
Minni aflaheimildir setja mark sitt á efnahagshorfur

Minni aflaheimildir setja mark sitt á efnahagshorfur

19. nóvember 2026

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands hafa útflutningshorfur versnað frá því í ágúst, meðal annars vegna minni aflaheimilda í sjávarútvegi. Bankinn gerir nú ráð fyrir að útflutningsframleiðsla sjávarafurða dragist saman um 9,1% á þessu ári í stað 4,3% samdráttar í ágústspánni. Horfur fyrir næsta ár hafa einnig versnað og er nú spáð 0,1% samdrætti í stað 0,4% aukningar, einkum vegna minni loðnuafla, þótt auknar aflaheimildir í makríl, kolmunna og norsk-íslenskri síld vegi að hluta á móti.

Lakari útflutningshorfur, ásamt minni vexti innlendrar eftirspurnar, setja jafnframt mark sitt á hagvaxtarspá bankans. Nú er gert ráð fyrir 1% hagvexti í ár og 1,2% á næsta ári, sem er í báðum tilvikum minni vöxtur en spáð var í ágúst.

Á sama tíma hefur verðþróun sjávarafurða verið afar hagstæð og stuðlað að bættum viðskiptakjörum þjóðarbúsins. Seðlabankinn spáir nú að útflutningsverð sjávarafurða í erlendri mynt hækki um tæplega fimmtung á þessu ári, sem er um fjórum prósentustigum meiri hækkun en í ágústspánni. Á næsta ári er jafnframt spáð 5,2% verðhækkun í stað 2,8% áður.

Minni afli en mun hærra verð

Seðlabankinn rekur lakari horfur um útflutningsframleiðslu sjávarafurða meðal annars til þess að samdrátturinn á þriðja ársfjórðungi varð meiri en bankinn hafði gert ráð fyrir í ágúst. Þá gætir einnig grunnáhrifa, þar sem endurskoðaðar tölur Hagstofunnar sýna að samdrátturinn á fjórða ársfjórðungi í fyrra var minni en áður var talið. Báðir þessir þættir leggjast því á sömu sveif og skýra aukinn samdrátt í spá Seðlabankans frá því í ágúst. Þegar litið er yfir árið hefur spá bankans um útflutningsframleiðslu sjávarafurða fyrir 2026 farið stöðugt versnandi, úr 0,9% samdrætti í febrúar í 9,1% í nóvember.

Spá bankans um útflutningsverð sjávarafurða hefur á hinn bóginn verið færð upp með hverri nýrri spá á árinu. Seðlabankinn nefnir nokkra samverkandi þætti til skýringar á verðhækkunum undanfarinna missera. Skertar aflaheimildir hér við land og á öðrum mikilvægum veiðisvæðum hafa dregið úr framboði, auk þess sem innflutningsbann Evrópusambandsins á rússneskar sjávarafurðir hefur takmarkað framboð á mörkuðum sambandsins. Eftirspurn eftir íslenskum sjávarafurðum hefur jafnframt verið kröftug. Verðhækkanir á fyrri hluta ársins mátti fyrst og fremst rekja til botnfisks, sérstaklega þorsks. Á þriðja ársfjórðungi hækkaði verð á uppsjávarfiski hins vegar meira en bankinn hafði áður gert ráð fyrir, einkum á makríl. Þá hækkun má jafnframt rekja til umtalsverðrar skerðingar á aflaheimildum.

Verðhækkanir vega upp samdrátt í magni 

Samdráttur í útflutningsframleiðslu þarf ekki að þýða að útflutningsverðmæti minnki. Þótt Seðlabankinn hafi ítrekað fært niður spá sína um útflutningsmagn sjávarafurða á árinu hefur hann jafnframt fært verðspána upp, sem hefur vegið þar á móti. Horfur um útflutningsverðmæti sjávarafurða, og þar með útflutningstekjur, hafa því haldist nokkuð svipaðar í spám bankans á árinu.

Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða um 3,6% í krónum talið, þrátt fyrir að útflutningsframleiðslan drægist saman um 4,8% og gengi krónunnar styrktist um 4,5%. Aukninguna má því einkum rekja til 13,8% hækkunar útflutningsverðs í erlendri mynt. Miðað við spá Seðlabankans um magn, verð og gengi, ásamt þróuninni það sem af er ári, eru horfur á að sagan endurtaki sig í ár.

Á fyrstu tíu mánuðum ársins námu útflutningsverðmæti sjávarafurða tæpum 315 milljörðum króna og jukust um 5,4% frá sama tímabili í fyrra. Á föstu gengi var aukningin 6,6%. Útflutningsverðmæti hafa því haldið áfram að aukast þrátt fyrir samdrátt í útflutningsframleiðslu en styrking krónunnar hefur dregið úr aukningunni í krónum talið.

Margir óvissuþættir 

Forsendur Seðlabankans um magn, verð og gengi benda jafnframt til þess að útflutningsverðmæti sjávarafurða aukist á næsta ári. Óvissan er þó mikil enda er sjaldan á vísan að róa í íslenskum sjávarútvegi. Seðlabankinn bendir á að endanlegar aflaheimildir í loðnu liggi enn ekki fyrir en lokaráðgjöf Hafró verður gefin út að lokinni vetrarmælingu eftir áramót. Eins gæti verð sjávarafurða gefið eftir ef framboð eykst, alþjóðleg eftirspurn veikist eða neysluvenjur breytast. Þá er að vanda mikil óvissa um gengisþróun.

Fjárfestingaráform vekja áhyggjur 

Niðurstöður nýrra kannana draga upp fremur dökka mynd af fjárfestingaráformum í sjávarútvegi. Samkvæmt könnun Seðlabankans er sjávarútvegur eina atvinnugreinin á Íslandi þar sem gert er ráð fyrir minni fjárfestingu í ár. Í könnun Gallup mælist jafnframt mest svartsýni um fjárfestingaráform meðal stjórnenda í greininni.

Þessar niðurstöður þarf að skoða í ljósi stórfelldrar hækkunar veiðigjaldsins. Fjárfestingar ráðast að miklu leyti af væntingum um framtíðararðsemi, ekki aðeins af rekstrarskilyrðum líðandi stundar. Miklar verðhækkanir á erlendum mörkuðum hafa vissulega verið hagstæðar, en umfang þeirra var ekki fyrirséð og þær geta gengið til baka. Af hagstæðri verðþróun í dag verður því ekki dregin sú ályktun að stóraukin gjaldtaka hafi engin áhrif á fjárfestingarsvigrúm og verðmætasköpun til lengri tíma. Áframhaldandi fjárfestingar eru lykilforsenda þess að sjávarútvegurinn geti staðist samkeppni, aukið framleiðni, skapað meiri verðmæti og styrkt framlag sitt til þjóðarbúsins. Það er því full ástæða til að hafa áhyggjur af þeim blikum sem nú eru á lofti varðandi fjárfestingar í sjávarútvegi.