Fara á efnissvæði
Sjávarafurðir: samdráttur í september

Sjávarafurðir: samdráttur í september

7. október 2026

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 33 milljörðum króna í september. Það er tæplega 7% samdráttur í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 1% sterkara nú í september en fyrir ári, miðað við gengisvísitölu Seðlabankans, er samdrátturinn aðeins minni í erlendri mynt, eða tæp 6%. Þetta má greina í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í september, en þar eru verðmætin einungis birt niður á grófa vinnsluflokka, ekki fisktegundir.

Mestu munar um makríl

Samdrátturinn skýrist fyrst og fremst af minni útflutningi á heilfrystum fiski og má telja nokkuð víst að þar vegi umtalsverður samdráttur í útflutningi á makríl þungt. Verðmæti heilfrysts fisks nam um 5,2 milljörðum króna í september og dróst saman um 43% frá sama mánuði í fyrra á föstu gengi. Í september í fyrra stóð makríll undir rúmlega 70% af útflutningsverðmæti alls heilfrysts fisks. Samdráttinn í makrílútflutningi má svo aftur rekja til verulegs samdráttar í aflaheimildum í makríl, en makrílafli íslenskra skipa nam um 130 þúsund tonnum í fyrra en er aðeins um 31 þúsund tonn í ár. 

Mun jákvæðari þróun var í flestum öðrum vinnsluflokkum. Útflutningsverðmæti fiskimjöls jókst um 86% á milli ára í september á föstu gengi og lýsis um rúm 21%. Einnig var aukning í söltuðum og þurrkuðum afurðum (7%) og frystum flökum (2%). Umtalsverð aukning var í flokknum „aðrar sjávarafurðir“ (65%), en þar undir flokkast meðal annars loðnuhrogn sem kann að skýra hluta aukningarinnar. Á móti var samdráttur í ferskum afurðum (8%) og rækju (84%). Útflutningsverðmæti rækju hefur raunar ekki verið lægra í einum mánuði á þessari öld og var aðeins um 129 milljónir króna. Það má fyrst og fremst rekja til hráefnisskorts.

Um 7% aukning frá áramótum

Útflutningsverðmæti sjávarafurða er komið í 281 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er um 7% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Þar munar mest um rúmlega 14% aukningu í útflutningsverðmæti heilfrysts fisks, sem má fyrst og fremst rekja til loðnu. Næstmest munar um fryst flök (6%), þá ferskar afurðir (5%) og flokkinn „aðrar sjávarafurðir“ (16%). Einnig var ágæt aukning í söltuðum og þurrkuðum afurðum (10%) og lýsi (12%). Lítilsháttar samdráttur var í fiskimjöli (2%) en mestur í rækju, þar sem útflutningsverðmætið dróst saman um nær helming.