Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 4,8 milljörðum króna í júlí. Samtals eru verðmætin komin í 40,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri á þessum tíma árs. Að teknu tilliti til gengisbreytinga nemur aukningin tæpum 36% frá sama tímabili í fyrra, þegar verðmætin voru 30,1 milljarður króna á föstu gengi.
Til samanburðar nam útflutningsverðmæti eldisafurða rúmlega 53 milljörðum króna allt árið í fyrra. Verðmætin á fyrstu sjö mánuðum þessa árs nema því þegar rúmlega þremur fjórðu af verðmæti síðasta árs í heild.
Töluverð framleiðsluaukning á laxi, bæði í sjókvíaeldi og landeldi, skýrir þessa stöðu. Samkvæmt mælaborði Matvælastofnunar var 37,2 þúsund tonnum slátrað úr sjókvíum á fyrstu sjö mánuðum ársins, samanborið við 25,4 þúsund tonn á sama tímabili í fyrra. Það er 46% aukning.
Þegar horft er til framleiðsluáætlana fiskeldisfyrirtækja má ætla að heildarframleiðsla í fiskeldi á landi og í sjó geti slagað upp í 80 þúsund tonn (óslægt) á árinu. Til samanburðar var framleiðslan 64,4 þúsund tonn í fyrra. Gangi væntingar eftir er ekki ólíklegt að 60 milljarða króna múrinn falli undir lok árs og 70 milljarða króna múrinn gæti einnig verið innan seilingar.
Vægi sjávar- og eldisafurða ekki meira síðan í faraldrinum
Ágætis aukning hefur einnig verið í útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu sjö mánuðum ársins, eða sem nemur um tæp 12% á föstu gengi. Eins hefur verið dágóð aukning í fiskmeti, eða sem nemur tæpum 9% á sama kvarða. Sjávar- og eldisafurðir voru tæp 47% af verðmæti alls vöruútflutnings á fyrstu sjö mánuðum ársins, samanborið við rúm 43% á sama tímabili í fyrra. Hlutfallið hefur ekki verið hærra síðan á faraldursárunum. Vægi eldisafurða eitt og sér jókst úr 5,6% í 7,1% milli ára og hefur aldrei verið meira á fyrstu sjö mánuðum ársins.
Verðmæti alls vöruútflutnings nam tæpum 574 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins. Það er um 6% aukning á milli ára að teknu tillit til gengisbreytinga. Séu sjávar- og eldisafurðir hins vegar undanskildar, mælist lítilsháttar samdráttur, eða um 0,5% á sama kvarða.