Fara á efnissvæði
Loðnan litla – áhrifavaldur til sjós og lands

Loðnan litla – áhrifavaldur til sjós og lands

9. október 2026

Loðnan, þessi litli fiskur, skiptir þjóðarbúið miklu máli. En hún er brellin, blessunin, og ekki er hægt að stóla á hana frá ári til árs. Stundum kemur hún í miklu magni, stundum í svo litlu að ekki er gefinn út kvóti til veiða. En alltaf er hún þarna einhvers staðar og hún er mikilvægur hlekkur í vistkerfi sjávar við Ísland.

Það styttist í haustráðgjöf Hafró um hversu mikið má veiða á næstu vertíð. Eftirvæntingin er allnokkur því góð loðnuvertíð getur skipt þjóðarbúið nokkru máli. Góð vertíð eykur útflutningstekjur þjóðarbúsins, tekjur útgerða, sjómanna og fiskvinnslufólks. Fleira bætist við því sveitarfélög víða um land, einkum á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum, njóta góðs af. Þá eru ótalin hin fjölmörgu fyrirtæki sem tengjast útgerðunum beint og óbeint og selja þeim vörur og þjónustu.

Það er búið að gefa út svokallaða upphafsráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, um 358 þúsund tonn. Það er þó langt frá því gefið að niðurstaðan verði sú sama nú, enda getur ráðgjöfin tekið miklum breytingum eftir því sem nýjar mælingar liggja fyrir yfir veturinn. Á myndinni hér að neðan sést þetta ágætlega. Á fiskveiðiárinu 2022/2023 var upphafsráðgjöfin 400 þúsund tonn, haustráðgjöfin rúm 218 þúsund tonn en lokaráðgjöfin 460 þúsund tonn.

Haustráðgjöfin í fyrra var á svipuðu róli og upphafsráðgjöfin, um 44 þúsund tonn á móti rúmlega 46 þúsund tonnum. Lokaráðgjöfin, sem iðulega er kynnt í janúar eða febrúar, hljóðaði hins vegar upp á 198 þúsund tonn. Þar af var hlutur Íslands tæplega 151 þúsund tonn.

Loðnan er sér á báti

Líkt og fjallað var um á Radarnum nýlega má aukningu í útflutningsverðmæti sjávarafurða á árinu að langstærstum hluta rekja til loðnu. Verðmæti loðnuafurða nam 22,5 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins, sem er 160% aukning frá sama tímabili í fyrra. Aukningin er þó langt frá því að vera í sama hlutfalli og aukningin í loðnuafla íslenskra skipa, sem fór úr 5,6 þúsund tonnum í fyrra í tæp 152 þúsund tonn í ár.

Það gefur því auga leið að ekki er hægt að gera ráð fyrir að útflutningsverðmæti aukist í sama hlutfalli og ráðlagður heildarafli. Á sama hátt er ekki hægt með einföldum hlutfallsreikningi að gera ráð fyrir langtum minni verðmætum af lítilli loðnuvertíð. Á myndinni sést að þótt engin loðna hafi verið veidd á árunum 2019, 2020 og 2024 kemur útflutningur engu að síður fram í tölum Hagstofunnar. Það skýrist af birgðum frá fyrri vertíðum, enda falla veiðar og útflutningur ekki alltaf til innan sama árs.

Stærð kvótans ræður miklu

Loðnan er sér á báti miðað við aðrar fisktegundir. Beint samband á milli magns og verðmæta er ekki til staðar og erfitt er að nota eina loðnuvertíð til þess að spá fyrir um þá næstu. Loðnuveiðar hafa verið mjög sveiflukenndar á þessari öld og ráðstöfun aflans þar með mismunandi. Ótal þættir hafa áhrif á samsetningu og verð afurðanna. Þar ber hæst að nefna stærð loðnukvótans, sem segir ekki aðeins til um það magn sem fyrirtækin hafa heimild til að veiða heldur einnig um skipulag veiða og þar með hvernig aflanum verður líklega ráðstafað.

Fylgist með - það styttist í ráðgjöf

Því stærri sem loðnukvótinn er, því fyrr byrja veiðarnar almennt og af meiri krafti. Þá fer mikið í bræðslu í upphafi veiðitímabilsins, því þá er loðnan hvað feitust, sem er hagstætt fyrir lýsisframleiðslu. Hlutdeild loðnumjöls og lýsis er því almennt meiri eftir því sem kvótinn er stærri. Fyrirtækin gæta þess þó að eiga nægilega mikið eftir þegar kemur að verðmætasta hluta vertíðarinnar, hrognatökunni. 

Eftir því sem kvótinn er minni þeim mun mikilvægara er að veiða loðnuna í lok vertíðar þegar hún er hrognafull og verðmætust. Hlutdeild loðnuhrogna, sem eru verðmætasta afurð loðnunnar, er því almennt hærri þegar loðnukvótinn er minni. Það þýðir, að öðru óbreyttu, meiri verðmæti fyrir hvert kíló sem dregið er úr sjó.

Haustráðgjöfin sem Hafró kynnir á næstu dögum mun því segja talsvert meira en hversu mörg tonn verður heimilt að veiða. Hún mun að leggja línurnar fyrir næstu loðnuvertíð. Fylgist því vel með, það gæti borgað sig!