Það er óhætt að segja að haustráðgjöf Hafró um loðnu frá því í gær sé töluvert undir væntingum. Stofnunin leggur til að afli á fiskveiðiárinu 2026/2027 verði ekki meiri en tæp 106 þúsund tonn. Upphafsráðgjöfin, sem gefin var út í júní, hljóðaði hins vegar upp á rúm 358 þúsund tonn. Ráðgjöfin hefur því verið lækkuð um 70%. Af heildarráðgjöfinni koma tæp 86 þúsund tonn í hlut Íslands.
Í tilkynningu Hafró kemur fram að stofnunin telji líklegt að stærð veiðistofnsins sé vanmetin í haustmælingunni. Ástæðan er sú að vegna ótíðar og hafíss tókst ekki að mæla allt nyrsta útbreiðslusvæði loðnunnar. Það er því ekki öll nótt úti enn um stærri loðnukvóta á yfirstandandi fiskveiðiári, en lokaráðgjöf Hafró verður gefin út að lokinni vetrarmælingu eftir áramót.
Því fyrr - því betra
Það er ekkert nýtt að miklar vendingar verði í loðnuráðgjöf á milli mælinga, eins og fjallað var um nýlega á Radarnum og myndin hér að ofan sýnir vel. Þar má jafnframt sjá að undanfarin ár hefur ráðgjöfin oftar en ekki aukist að lokinni vetrarmælingu.
Það skiptir þó ekki aðeins máli hversu mikil möguleg viðbót verður heldur einnig hvenær hún kemur. Nærtækt er að rifja upp vertíðina 2022/2023. Þá nam haustráðgjöfin rúmum 218 þúsund tonnum. Í byrjun febrúar 2023 var ráðgjöfin aukin um rúm 57 þúsund tonn og 24. febrúar bættust svo rúm 184 þúsund tonn við. Lokaráðgjöfin var þar með komin í tæp 460 þúsund tonn.
Stærsta viðbótin kom þegar verðmætasti hluti vertíðarinnar var handan við hornið og svigrúm fyrirtækjanna til að endurskipuleggja veiðar og vinnslu því lítið. Hefði viðbótin verið fyrirséð er ljóst að veiðar hefðu hafist fyrr og af meiri krafti og stærri hluti aflans farið í aðrar afurðir áður en komið var að hrognatökunni. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Met var sett í framleiðslu loðnuhrogna, framleiðslan varð meiri en eftirspurnin réð við og í kjölfarið lækkaði verð umtalsvert og birgðir hlóðust upp.
Verðþróunin á loðnuhrognum á myndinni hér fyrir neðan endurspeglar þetta vel. Eftir loðnubrest árin 2019 og 2020 og takmarkað framboð hækkaði verðið hratt og náði hámarki árið 2022. Þrátt fyrir mjög stóran loðnukvóta það ár náðist ekki að veiða hann allan, meðal annars vegna slæms veðurs og göngumynsturs loðnunnar. Það sem eftir stóð var ætlað til hrognatöku og varð framleiðsla á loðnuhrognum því minni en ella. Árið 2023 snerist þróunin hins vegar við og verð lækkaði umtalsvert.
Stærð kvótans segir nefnilega ekki einungis til um magnið sem fyrirtækin hafa heimild til að veiða, heldur einnig um skipulag veiða og þar með hvernig aflanum verður líklega ráðstafað. Því stærri sem loðnukvótinn er, því fyrr hefjast veiðarnar almennt og hlutfallslega meira fer í mjöl og lýsi áður en kemur að hinni dýrmætu hrognatöku undir lok vertíðar. Því fyrr sem viðbótarkvótinn liggur fyrir, þeim mun betur er unnt að haga skipulagi veiða og ná þannig meiri verðmætum úr vertíðinni.