Styrkar stoðir til framtíðar

12. nóvember, 2024

Það skiptir miklu máli hvaða atvinnugreinar draga vagninn í hagkerfinu til framtíðar og falli vel að þeirri mynd að Ísland er hálaunaland í alþjóðlegum samanburði, með ein bestu lífskjör í heimi. Það er nokkuð ljóst að fiskeldi fellur vel að þeirri mynd og sé ein þeirra grunnstoða sem má treysta til framtíðar. Þetta má glögglega sjá í tölum Hagstofunnar um staðgreiðsluskyldar launagreiðslur, sem er stærsti hluti atvinnutekna launafólks. Samhliða birtir Hagstofan tölur um fjölda einstaklinga sem fær þær greiddar.

 

Samkvæmt tölum Hagstofunnar fengu að jafnaði um 890 einstaklingar greiddar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur í fiskeldi í mánuði hverjum á fyrstu níu mánuðum ársins. Frá sama tímabili árið 2010 hefur fjöldinn hátt í fimmfaldast. Sama er upp á teningnum með staðgreiðsluskylda launasummu, þ.e. samanlagðar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur alls launafólks innan greinarinnar, sem hér eru nefndar atvinnutekjur. Þær námu ríflega 7.600 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er hátt í níu sinnum hærri fjárhæð að raunvirði en á sama tímabili árið 2010. Vart þarf að nefna að aldrei hafa fleiri einstaklingar starfað í fiskeldi hér á landi og nú í ár. Að sama skapi hafa atvinnutekjur í greininni aldrei verið meiri.

 

 

Verðmæt störf verða til

Í raun hefur hlutfallsleg aukning launafólks eða atvinnutekna hvergi verið meiri en í fiskeldi af öllum atvinnugreinum hér á landi frá árinu 2010. Og í raun er sama hvaða upphafsár er tekið mið af frá þeim tíma, aukningin er iðulega mest í fiskeldi. Því er eðlilegt að velta fyrir sér hvort að þessi tiltekna atvinnugrein, fiskeldi, falli vel að íslensku samfélagi. Í því sambandi er ágætt að rýna í atvinnutekjur á mann í fiskeldi og skoða hvernig þær þróast í samanburði við aðrar atvinnugreinar að jafnaði. Hér ber vissulega að halda til haga að hér er um grófa nálgun að ræða þar sem ekki er tekið tillit til fjölda vinnustunda.

 

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá að atvinnutekjur á mann í fiskeldi hafa verið nokkuð hærri en að jafnaði í öllum atvinnugreinum samanlagt frá árinu 2014. Fyrir þann tíma var þessu öfugt farið. Þar hefur munurinn jafnframt farið vaxandi nánast með hverju árinu sem líður. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru atvinnutekjur á mann í fiskeldi um 82% hærri að raunvirði en á sama tímabili árið 2010. Það er mesta aukning atvinnutekna á mann af öllum atvinnugreinum hér á landi. Að jafnaði hafa atvinnutekjur á mann í öllum atvinnugreinum samanlagt hækkað um 28% að raunvirði.

 

Öflug atvinnustarfsemi skilar ríkulega til samfélagsins

 

Áhugavert er að líta á fleiri atvinnugreinar í þessu samhengi og sjá hvernig fiskeldi kemur út í þeim samanburði. Rétt er að geta þess að ekki liggur fyrir sundurliðun á þessum gögnum fyrir sjávarútveginn niður á fiskveiðar og -vinnslu frá því í apríl í fyrra. Því eru veiðar og vinnsla tekin saman hér, en atvinnutekjur á mann í fiskveiðum hafa ávallt verið hæstar af öllum atvinnugreinum eins langt aftur og gögn Hagstofunnar ná (frá árinu 2008).

 

Á myndinni sem kemur fyrir hér neðst í greininni má sjá að atvinnutekjur á mann í öllum atvinnugreinum samanlagt voru um 773 þúsund krónur á mánuði á fyrstu níu mánuðum ársins. Atvinnutekjur eru hæstar í rafmagns-, gas- og veitustarfsemi og næsthæstar í sjávarútvegi í þessum samanburði.  Atvinnutekjur á mann í fiskeldi voru 957 þúsund krónur á mánuði og er greinin þar með í fjórða sæti yfir hæstu atvinnutekjur á mann hér á landi.

 

Eins og áður segir er hér um samanburð að ræða á launagreiðslum þar sem ekki er tekið tillit til fjölda vinnustunda, en hlutastörf eru t.d. misalgeng á milli atvinnugreina. Eins er menntunarstig á milli atvinnugreina mishátt, sem einnig hefur áhrif á launagreiðslur. Þessar tölur gefa þó ákveðna vísbendingu um hvernig fiskeldi kemur út í samanburði við aðrar atvinnugreinar hér á landi þegar kemur að atvinnutekjum. Það skiptir máli og þá sér í lagi þegar hugað er að þeim sóknarfærum sem Íslendingar standa frammi fyrir í fiskeldi og framtíðarstefnu Íslendinga í atvinnumálum.

Í þessu samhengi er jafnframt ágætt að hafa í huga að laun hafa ekki einungis áhrif á hag launafólks, heldur einnig á t.d. ríkissjóð og sveitarfélög. Það vill oft gleymast í umræðunni. Er hér nærtækt að nefna tryggingargjald sem leggst ofan á launagreiðslur, en það er stór tekjustofn fyrir ríkissjóð. Tekjuskattur og útsvar starfsmanna skiptir einnig máli í þessu samhengi. Þessir tekjustofnar ríkissjóðs og sveitarfélaga grundvallast á þeim verðmætum sem af starfsemi fiskeldisfyrirtækja hlýst með beinum hætti. Eftir því sem verðmætasköpun verður meiri og laun hærri, þá hefur það ekki einungis jákvæð áhrif á hag launafólks, heldur einnig á ríkisjóð og sveitarfélög í gegnum tryggingargjald og staðgreiðslu og útsvar starfsmanna. Það er óumdeilt að öflug atvinnustarfsemi, sem er í færum að skapa meiri verðmæti í dag en í gær og tryggir bæði heilsárs og vel launuð störf, skilar ríkulega til samfélagsins og langt umfram hina sértæku gjaldtöku sem lagt er á fiskeldi í formi auðlindagjalds og umhverfisgjalds. Mikilvægt er að styrkja slíkar stoðir til framtíðar og er fiskeldið í stakk búið til þess.

 

 

Deila frétt á facebook