Vægi fiskeldis eykst í útflutningi

4. nóvember, 2024

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam rúmlega 4,6 milljörðum króna í september. Það er um fjórðungs aukning frá sama mánuði í fyrra á föstu gengi. Þar með er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í rúma 35 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri. Miðað við sama tímabil í fyrra er um 23% aukningu að ræða á föstu gengi. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan, þá er verðmæti eldisafurða um 14% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu níu mánuðum ársins og 5% af verðmæti vöruútflutnings alls. Þau hlutföll hafa heldur aldrei verið hærri á tilgreindu tímabili. Þetta má sjá í tölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í síðustu viku.

 

 

Mestu munar um laxinn

Ofangreinda þróun má að langstærstum hluta rekja til laxeldis. Þannig er útflutningsverðmæti eldislax komið í rúma 29 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira. Miðað við sama tímabil í fyrra er um 35% aukningu að ræða á föstu gengi. Einnig er veruleg aukning á útflutningsverðmæti Senegal flúru, sem er einn verðmætasti matfiskur í heimi. Þannig er útflutningsverðmæti hennar komið í rúma 1,3 milljarða króna á tilgreindu tímabili, sem er um 78% aukning á milli ára á sama kvarða.  

 

Á hinn bóginn er töluverður samdráttur í útflutningsverðmæti silungs, sem er að langstærstum hluta bleikja. Útflutningsverðmæti silungs er komið í 3,3 milljarða króna, sem er um 21% samdráttur frá sama tímabili í fyrra. Þar hafa jarðhræringar og eldsumbrot í Grindavík sett strik í reikninginn. Þá er einnig töluverður samdráttur í útflutningsverðmæti frjóvgaðra laxahrogna, sem eru verðmæt hátækniframleiðsla. Útflutningsverðmæti þeirra nemur rúmum 1,4 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er um 31% samdráttur frá sama tímabili í fyrra.

 

Það ætti nú að vera öllum ljóst að fiskeldi er nú þegar orðinn veigamikill liður í útflutningi Íslendinga og mun án nokkurs vafa verða enn fyrirferðarmeira þegar fram líða stundir. Sú þróun er afar jákvæð, enda eykur fiskeldi fjölbreytni í útflutningi og styrkir gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á atvinnulíf og samfélög víða um land. Það má heldur ekki gleyma þeirri staðreynd að varanlegur vöxtur útflutningstekna er grundvallarforsenda sjálfbærs hagvaxtar og bættra lífskjara hér á landi.

 

 

Deila frétt á facebook