Fiskeldi: Árið byrjar með látum

11. mars, 2024

Framleiðsla og útflutningur á eldisafurðum hefur farið afar vel af stað í byrjun árs. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í rúma 13,3 milljarða og er það langhæsta upphæð á þessu tímabili frá upphafi. Útflutningsverðmæti eldisafurða í janúar og febrúar er þannig er 35% hærri en frá fyrra ári í krónum talið og rúmlega 39% á föstu gengi. Nýliðinn febrúarmánuður er þriðji stærsti útflutningsmánuðurinn frá upphafi og janúar er sá fjórði. Því er óhætt að segja að eldisárið byrji með látum.

Samhliða auknum útflutningi hefur hlutfall eldisafurða af verðmæti alls vöruútflutnings aukist til muna. Vægi eldisafurða í vöruútflutningi var þannig 8,4% í janúar og febrúar. Síðustu ár hefur vægi þeirra verið í kringum 6% á fyrstu tveimur mánuðum ársins og var 6,4% á síðasta ári. Þetta má lesa úr bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruviðskipti sem birtar voru í síðustu viku. Þar eru ekki birt útflutningsverðmæti eða magn niður á einstaka tegundir, en þær tölur verða birtar í lok þessa mánaðar. Gera má fastlega ráð fyrir að yfir 90% þessara 13,3 milljarða megi rekja til útflutnings á laxi, en hlutfall lax var um 92% í janúar.


Mælaborðið uppfært fyrir árið 2023
 

Aukinn útflutningur í byrjun árs eru afar jákvæðar fréttir, sérstaklega í ljósi þess að samdráttur var í framleiðslu og þar af leiðandi útflutningi eldisafurða á síðasta ári.  Rekja má þann samdrátt að mestu leyti til veirusmits og viðbragða vegna þess á Austfjörðum í lok árs 2021. Fiskur sem annars hefði komið til framleiðslu árið 2023 var þannig fjarlægður úr kvíum en rúmlega 60% minni framleiðsla var á Austfjörðum á síðasta ári miðað við árið áður. Góður gangur var hins vegar á Vestfjörðum þar sem um 20% aukning var á framleiðslu á eldisfiski, þar sem lax leikur lykilhlutverk.

Aukning var milli áranna 2022 og 2023 í framleiðslu og útflutningi á bleikju og Senegalflúru, en örlítið minna var framleitt af regnbogasilung. Þessar þrjár tegundir, auk lax, eru þær einu sem framleiddar voru á síðasta ári.

Þessa þróun má sjá í nýuppfærðum tölum á Radarnum. Þar má einnig sjá ótal gröf um króka og kima fiskeldis, hvort sem það er um framleiðslu, útflutning eða vinnumarkað.

Deila frétt á facebook