Fiskeldi: Metárið 2020 nú þegar toppað
4. nóvember, 2021
Útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu 10 mánuðum ársins er nú þegar orðið meira en það var í fyrra, sem var metár. Þetta kom í ljós í morgun þegar Hagstofan birti fyrstu tölur um vöruskipti í október. Samkvæmt þeim nam útflutningsverðmæti eldisafurða um 3,5 milljörðum króna i október og hefur það aldrei áður verið meira hvað þann mánuð áhrærir. Miðað við október í fyrra er aukningin um þriðjungur í krónum talið. Gengi krónunnar var um 7% sterkara nú í október en í sama mánuði í fyrra og er aukningin því nokkuð meiri í erlendri mynt, eða sem nemur 42%.
![](https://44263.cdn.cke-cs.com/oKMCNEPPnAPfg4rp2GMO/images/9808fce303dc9a0460fe965dc255c9400158844199860a3f.png)
Komið yfir 30 milljarða
Á fyrstu 10 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í 30,5 milljarða króna. Það er um 35% aukning frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Hefur útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei áður verið meira á tímabilinu og er nú þegar orðið meira en það hefur áður verið á heilu ári, líkt og blasir við á myndinni hér fyrir neðan. Er útflutningsverðmæti eldisafurða 5% af heildarverðmæti vöruútflutnings á tímabilinu en tæp 13% af útflutningsverðmæti sjávarafurða. Þessi hlutföll hafa aldrei áður veri hærri.
![](https://44263.cdn.cke-cs.com/oKMCNEPPnAPfg4rp2GMO/images/44dcbbbc65e8c49aa85527bbb678b99e80bc60cf8158503f.png)