Fiskeldi: Veruleg aukning í maí

8. júní, 2021

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam rúmlega 2,6 milljörðum króna í maí samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í mánuðinum. Miðað við sama mánuð í fyrra er um 54% aukningu að ræða í krónum talið. Gengi krónunnar var um 6% sterkara nú í maí en í maí í fyrra og er aukningin því nokkuð meiri í erlendri mynt, eða 63%. Þetta er stærsti maímánuður frá upphafi hvað verðmæti útfluttra eldisafurða áhrærir. Þetta má sjá í tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær.


Laxinn í öðru sæti
Sé tekið mið af fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur laxinn skilað næstmestu útflutningsverðmætum á eftir þorskinum af öllum þeim fisktegundum sem fluttar eru frá Íslandi. Loðnan kemur fast á hælana og mun vafalítið taka fram úr laxinum þegar maítölurnar bætast við, en sundurliðun niður á fisktegundir í maí liggur ekki enn fyrir. Hvort það verður loðnan eða laxinn sem mun skipa annað sætið í ár kemur síðar í ljós, en það er vandséð annað en að laxinn mun festa annað sætið rækilega í sessi á komandi árum. Aðrar fisktegundir geta að sjálfsögðu bætt við sig, en þegar veitt er úr náttúrulegum stofnum er magnaukningin þeirra miklu óvissari.  


Þriðjungs aukning það sem af er ári
Á fyrstu fimm mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í 15,6 milljarða króna. Það er 32% aukning á föstu gengi miðað við sama tímabil í fyrra. Eins og blasir við á myndinni hér fyrir neðan, þá hefur útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei áður verið meira á tímabilinu. Er það um 5,5% af heildarverðmæti vöruútflutnings á tímabilinu og hefur það hlutfall heldur aldrei verið hærra á fyrstu 5 mánuðum ársins.

 

Deila frétt á facebook