Rúmir 10 milljarðar í veiðigjald

1. febrúar, 2024

Alls greiddu sjávarútvegsfyrirtæki um 10,2 milljarða króna í veiðigjald á árinu 2023. Það rímar vel við væntingar eins og fjallað var um á Radarnum í nóvember. Heildarfjárhæð veiðigjaldsins á árinu 2023 var þar með um 30% hærri en árið á undan, en þá nam hún um 7,9 milljörðum króna. Þetta má sjá í tölum sem Fiskistofa birti nú í vikunni.

Þorskur, loðna og svo ýsa

Að vanda skila þorskveiðar hæstri fjárhæðinni í veiðigjald fyrir árið 2023, eða sem nemur um 4.022 milljónum króna. Það er þó aðeins lægri fjárhæð en veiðar á þorski skiluðu á árinu 2022, en þá nam hún 4.126 milljónum króna. Þennan mun má alfarið rekja til samdráttar í þorskafla, enda var sú upphæð sem fyrirtækin þurftu að greiða fyrir hvert kíló af þorski í veiðigjald hærri á árinu 2023 en árið á undan. Loðnuveiðar skiluðu svo næsthæstri fjárhæðinni í veiðigjald og svo veiðar á ýsu. Í töflunni sem kemur fyrir hér neðst má sjá nánari sundurliðun á fjárhæð veiðigjaldsins eftir fisktegund. Þar má jafnframt sjá afla og upphæð veiðigjaldsins fyrir hverja tegund, en fjárhæð veiðigjaldsins er einfaldlega margfeldi þessara tveggja þátta.


Betri afkoma, meira í ríkissjóð

Í lok nóvember birti matvælaráðherra auglýsingu í Stjórnartíðindum um veiðigjald fyrir árið 2024. Gjaldið er auglýst sem krónur á kíló landaðs óslægðs afla en sú upphæð er nákvæmlega 33% af afkomu fiskveiða á árinu 2022.  Ljóst er að upphæð veiðigjaldsins hækkar á langflestum tegundum á milli ára líkt og sjá má í töflunni hér fyrir neðan. Það kemur ekki á óvart, enda er gjaldið fyrir árið 2024 byggt á afkomu fiskveiða á árinu 2022, sem heilt yfir var gott ár í sjávarútvegi og afkoma af veiðum almennt betri en árið 2021.

Til að mynda var afkoma af hverju lönduðu óslægðu kílói af þorski 58,1 króna á árinu 2021 en var 80,8 krónur á árinu 2022. Upphæð veiðigjaldsins á hvert kíló af þorski hækkar því úr 19,17 krónum á árinu 2023 í 26,66 krónur á árinu 2024. Það er hæsta krónutala sem fyrirtækin hafa þurft að greiða í veiðigjald af þorski frá upphafi. Ef þorskaflinn yrði óbreyttur á milli ára myndi fjárhæð veiðigjaldsins af þorskveiðum enda í 5,6 milljörðum króna í ár. Óbreyttur afli á milli ára í hverri fisktegund myndi leiða til þess að heildarfjárhæð veiðigjalds yrði um 11,4 milljarðar króna í ár. En í þessum efnum ríkir óvissa og þá ekki síst varðandi útgáfu loðnukvóta í ár.

 

Deila frétt á facebook